hæ hæ núna er oðið langt síðan ég bloggaði síðast ...hélt eiginlega að ég væri búin að gleyma lykilorðinu inn á síðuna, en svo var víst ekki .....er svo minnug stelpan
héðan er allt gott að frétta.....skólinn byrjaður aftur og nóg að gera.....á eiginlega að verað skrifa ritgerð um smábörn núna, en er engan vegin í stuði...ekki gott mál þarf að reynað taka mig á ....
ég er ein heima um helgina....Eli ákvað að skreppa heim af því að systir hennar á afmæli og það er bara gott mál......ég er svosem ekki ein þar sem ég hef 4 naggrísi að hugsa um, en Eli tók hundinn Milo með sér.....og það var ágætt þar sem hann getur verið soldið fyrirferðamikill af og til....hvolpalæti og tilheyrandi
ég er búin að kynnast nokkrum íslenskum strákum hérna, reyndar er einn þeirra farinn aftur til Íslands og annar fer núna fljótlega, þeir vorum bara hérna í sumarvinnu eiginlega.....en Óli og Lalli eru hérna ennþá og það er flott.....hitti þá af og til og það er voða næs að heyra íslenskuna aftur....ágætt fyrir mig að reynað halda henni við líka.....systir mín gerði svo mikið grín af mér í sumar þegar ég talaði vitlaust, að ég þori ekki öðru en að æfa mig áður en ég hitti hana næst
en já núna er ég á síðasta árinu mínu í skólanum og er mikið farið að spá hvað ég eigi að gera í vor þegar ég klára.....á ég að farað vinna eða taka eitt auka ár í skólanum.......og ef ég ætlað fara beint að vinna...sem ég hugsa kannski að ég geri þar sem mér leiðist peningaleysi fátæka námsmannsins ....að þá er spurning hvar ég eigi að farað vinna.......finn það að útþráin er að gera vart við sig aftur og mig langar að upplifa meira af heiminum ....kannski maður kíki bara til Norður-Ameríku næst og læri að standa á skíðum m.m. .....hmmmm.....aldrei að vita hvað manni dettur í hug
en ég segi þetta gott í bili...efast um að það kíki nokkur maður hérna inn ennþá þar sem ég hef ekki skrifað neitt í ár og öld .....
13. september 2008 klukkan 18:13
Hanna Magnúsdóttir Engin athugasemd
um helgina var þjóðhátíðardagur norðmanna ....nánar tiltekið 17.maí.....við Eli Christine fórum að sjálfsögðu niðrí bæ og sáum skrúðgönguna.....og svo var smá pása þangað til næsta skrúðganga var, þannig að við kíktum í heimsókn til kunningjafólks sem býr í miðbænum.....það var svakalega kósý að sitja á veröndinni í sól og sumaryl svo klukkan fjögur sáum við aðra skrúðgöngu .....en þá var sólin farin og það varð soldið kalt þannig að við fórum bara heim...
En annars þá hef ég bara verið að lesa fyrir próf.....ekki skemmtilegt því miður.....en þetta fylgir víst þegar maður er í skóla.....við fáum fyrsta prófið á morgun kl. 10......og það er 3ja daga heimapróf.....verður spennandi að sjá hvernig það fer
um helgina buðum við tveimur stelpum í heimsókn og grilluðum kjúlla, og það var hrikalega næs....ég er náttla algjört séní þegar kemur að því að grilla.....ég er svo klár he he
....ég er svo þreytt núna að ég nenni ekki að skrifa meira.....við sjáum til hvenær ég blogga næst.....
það er búið að vera alveg svakalega gott veður undanfarið....ég fór út í garð í dag með "pikknikk" teppi og las fyrir próf.....hafði reyndar með mér naggana mína líka......þeim finnst svo gott að borða gras nefnilega......en svo var víst nýbúið að slá grasið ....og það líkaði þeim ekki....þannig að þær kvörtuðu og kveinuðu og svo endaði með því að þær fóru í pissuslag og pissuðu á hvor aðra......og ég lenti auðvitað í því að fá eina gusuna í andlitið.....hrikalega næs eða þannig .....þannig að ég neyddist til að fara inn og skola aðeins af mér......en það var svosem ekkert sniðugt að vera alltof lengi úti hvort eð er.....ég er nefnilega svo agalega sólbrend .....gleymdi að setja á mig sólarvörn á miðvikudaginn og svo sat ég úti í þrjá tíma og las fyrir próf.......mjög gáfulegt
en annars er það að frétta að ég kem heim á klakann 5.júní og verð þar í einn mánuð.....veit ekki hvort ég er ánægð með það eða ekki.....er náttla alveg hrikalega heimskulegt að fara til Íslands á sumrin, því það er svo lítið spennandi sumarveður þar......en mig langaði svo að geta unnið á leikskóla í sumar þannig að ég ákvað barað láta vaða þegar mér bauðst starf .....verður nú gott að fá íslenskan mat líka.....
En núna ætlum við Eli Christine að fá okkur smá göngutúr í góða veðrinu.....fáum okkur svo líklega einn kaldan á einum pöbbinum ....er svo kósý að sitja úti og skoða mannlífið
Hanna
09. maí 2008 klukkan 18:15
Hanna Magnúsdóttir 1 athugasemd
þá lítur út fyrir að sumarið sé komið í Kristiansand....ótrúlega næs ......er búin að bíða lengi eftir þessu .....núna er ekki langt þangað til maður getur farið að fara á ströndina og synda í sjónum
en ég er semsagt hálfnuð í prasksis núna......er búin að vera eina viku í fyrsta bekk í grunnskólanum og það er sko ekkert grín að vinna í skóla.....úfff.....ég hef aldrei verið eins þreytt......ég fer á fætur korter yfir 6 á morgnana og kem heim um fjögurleytið á daginn og þá tekur við skipulagning af næsta degi, og svo fer maður að sofa um miðnætti. .....á föstudaginn var ég meiraðsegja orðin veik, því líkaminn orkaði bara ekki meir. ....þannig að ég hef bara legið í rúminu alla helgina með hita og leiðindakvefpest......held samt að ég sé að verða betri núna þannig að ég vona að ég komist í gegnum næstu viku án mikilla vandræða. En á fimmtudaginn var ég semsagt með morgunsamverustundina og svo tók ég einn enskutíma eftir það .....já norðmenn byrja að læra ensku í fyrsta bekk......það gekk nú svona upp og ofan.....gekk ágætlega til að byrja með en svo þurfa alltaf einhverjir guttar að skapa vandræði og þá missir maður aðeins stjórnina......maður nær nefnilega ekki að vinna sér inn virðingu hjá börnunum á svona stuttum tíma, þannig að þá er voða erfitt að hafa stjórn á þeim. .....svo á föstudaginn var ég með lestrarkennsluna .....það gekk nokkuð vel....var frekar einfalt þar sem ég þurfti bara að hlusta á börnin lesa og svo spyrja þau nokkurra spurninga um það sem þau höfðu lesið.....voru reyndar tveir hópar af sex sem voru soldið að testa mig, en það gekk vel engu að síður......en svo var auðvitað soldið extra stress á manni því við fengum heimsókn af tveimur kennurum frá háskólanum og þær fylgdust vel með.....sérstaklega norskukennarinn......og henni fannst ég auðvitað getað gert meira en það sem ég gerði.....en þetta var fyrsta norskukennslan mín og það er ekki hægt að ætlast til svo voðalega mikils svona til að byrja með....maður getur ekki vitað allt
svo í næstu viku tek ég nokkra tíma í viðbót....þar á meðal einn leikfimitíma.....það verður spennandi að sjá hvernig það fer......en annars hjálpum við krökkunum þegar þau þurfa hjálp og það gengur mjög vel. .....fyrsta daginn vildu reyndar þau sem eru með mér í praksis bara standa aftast í stofunni og horfa á, og ekki tala við krakkana því þau héldu að krakkarnir yrðu hræddir.......en mér fannst það engan vegin rétt, því við höfum bara 2 vikur þarna og þá fannst mér mikilvægt að kynnast börnunum sem fyrst.....og þegar þau sáu að krakkarnir voru ekkert hræddir við mig, að þá ákváðu þau að koma og reynað kynnast þeim líka. .....við bara slepptum því að tala við þá sem við vissum að voru feimnir, því kennarinn hafði sagt að við ættum að halda okkur frá þeim fyrstu dagana
svo hringdi barnavernd í mig á mánudaginn og athugaði hvort ég hefði áhuga á einu máli sem þau höfðu.......það var nú ekki alveg það sem ég hafði sótt um en ég ætla að prófa það ef fjölskyldan samþykkir mig.....ég hef ekkert heyrt neitt meira frá þeim þannig að ég veit ekki hvort ég fæ vinnuna eða ekki ...það kemur bara í ljós......allt tekur jú svo langan tíma í kerfinu eins og þið vitið .....og svo hringdi ein kona í mig á miðvikudaginn frá heimili fyrir fötluð börn, og spurði hvort ég vildi vinna þar í sumar.....er reyndar bara frá miðjum júlí til miðjan ágúst en það er betra en ekkert og þá á ég líka stærri möguleika á að fá vinnu þar með skólanum næsta haust....þannig að það er frábært ......og svo ætlum við Eli Christine að öllum líkindum að taka að okkur að passa tvo hunda tvær vikur í mánuði.....en það byrjar ekki fyrr en í september....þannig að þá fæ ég smá aukavinnu með skólanum...þekkjum nefnilega eina konu sem vinnur í norðursjónum, og hún er alltaf að vinna í tvær vikur og er svo tvær vikur heima á milli......en hún á tvo hunda, einn stóra dana og einn risenschnauzer sem henni vantar pössun fyrir. .....er ekki slæmt að fá borgað fyrir að fara út að labba með hunda.....við Eli ætlum semsagt bara að taka eina viku hvor ....þannig að þá er að bara ein vika í mánuði sem maður er bundinn .....ekki svo slæmt
en jæja ætli ég segi þetta ekki gott í bili....
vi snakkas
Hanna
20. apríl 2008 klukkan 12:00
Hanna Magnúsdóttir Engin athugasemd
jæja þá er vorið handan við hornið og prófastressið fer að segja til sín fljótlega.....
í næstu viku fer ég aftur í praksis og núna á ég að kenna í 1.bekk.....það verður gaman....ég hlakka mikið til alla vega :) ....við fórum uppí skóla í dag og töluðum við kennarann og sáum skólastofuna og svona....mjög spennandi :) krakkarnir sem eru með mér í praksis virka ágæt...við erum fjögur saman en ég þekki þau ekkert svakalega vel...vona að það gangi vel að vinna með þeim ;)
en svo er bara rétt rúmur mánuður í að prófin byrji......veit ekki alveg hvernig það á eftir að ganga.....vona að það reddist :) ....fyrst verð ég nú að standast praksisinn því ef ég fell þar þá fæ ég ekki að taka próf :/
en annars gerist voða lítið....maður kíkir öðru hverju á djamm og svoleiðis en það er bara same old, same old eiginlega.....maður hittir bara hina leikskólakennarana og skemmtir sér með þeim :)
en ég segi þetta gott í bili
Hanna
08. apríl 2008 klukkan 13:18
Hanna Magnúsdóttir 1 athugasemd
héðan er allt gott að frétta .....mér finnst alveg yndislegt að vera hérna í Kristiansand....ótrúlega þægilegt að hafa allt í göngufæri ...það gengur rosa vel að búa með Eli Christine....hafa alla vega ekki verið nein rifrildi ennþá....en maður reynir auðvitað að sýna smá tillitssemi þegar maður býr með öðrum
annars er ég á fullu að reynað fá mér einhverja aukavinnu með skólanum, því ég hef komist að því að maður getur ekki lifað á námsláninu einu og sér. ....ég er að vonast til að fá smá vinnu hjá barnavernd hérna í Norge, það bara getur tekið smá tíma þangað til þeir finna barn sem passar fyrir mig.....er nefnilega léttara að ná góðu sambandi við barnið þegar það hefur áhuga á því sem ég hef áhuga á...og það er mjög mikilvægt að barnið hafi það gott og geti talað við mig um hvað sem er, svo að það fái þá hjálp sem það þarf .....svo athugaði ég hvort ég gæti fengið einhverjar vaktir á svona heimili fyrir fötluð börn....konan sem ég talaði við sagði reyndar að það vantaði ekkert fólk eins og er, en hún tók alla vega ferilskrána mína og fannst það mjög fínt að ég hefði reynslu af vinnu í leikskóla og að ég væri búin með námskeið í skyndihjálp..... þannig að það er bara að vona það besta ....svo ætla ég að skrá mig hjá einu fyrirtæki sem reddar aukafólki fyrir leikskólana hérna í Kristiansand.....hérna nefnilega þurfa ekki leikskólar ríkisins að hringja sjálfir og leitað fólki ef einhver er veikur eða e-ð....þeira bara hringja í "vikarsentralen" og láta vita hversu margar aukamanneskjur þeim vantar, og svo hringir þetta fyrirtæki í alla sem eru á skrá hjá þeim ....svakalega sniðugt ....og svo þar sem ég hef nógan frítíma að þá ætla ég að farað vinna sem sjálfboðaliði með börnum í 5-7 bekk (einn dag, aðra hverja viku) ....er svona "aktivitetsgruppe" ... ..við erum semsagt nokkur fullorðin sem finnum upp á einhverju sniðugu fyrir börnin að gera og svo höfum við eftirlit með þeim og sjáum til þess að þau hafi gaman að þessu.....er farið á hestbak og hjólatúra, kíkt á diskótek eða farið í klettaklifur o.s.frv. ....ég hlakka mikið til...held það geti verið soldið skemmtilegt sakna soldið frændsystkina minna sem eru á þessum aldri og ákvað þess vegna að prófa þetta ....
ég er soldið lónlí akkúrat núna því Eli Christine var að fara heim til foreldra sinna í Langesund ....þau ætla víst í fjallaferð um páskana ....allir sem ég þekki ætla víst heim til foreldranna núna.....er nefnilega komin í páskafrí .....þá er ekki svo mikið fyrir mig að gera hérna.....annað en að glápa á imbann og dunda mér í tölvunni .....en reyndar að þá bauð vinur minn mér að koma til Dublin í næstu viku, þannig að ég ætlað gera það...nenni ekki að vera ein hérna ....er svo langt síðan ég var í Dublin síðast og ég sakna þess soldið....verður örugglega svaka stuð að vera þar á St.Patricks Day
en ætli þetta sé ekki nóg af bulli núna....ég blogga aftur síðar..
jæja þá er ég flutt til Kristiansand og líkar það alveg svakalega vel......munar helling að geta bara rölt í skólann og niðrí bæ og svona
annars er búið að vera alveg ÓGEÐSLEGA mikið að gera....var tvær vikur í praksis og það var ansi hektisk....og svo þurfti ég að gera ritgerð í norsku....fékk sem betur fer leyfi til að sleppa við að skrifa hana á nýnorsku ....og svo er núna þverfaglegt verkefni næstu tvær vikurnar .....semsagt ekki mikill tími til að slappa af
hef annars ekkert að segja því það er bara skóli, skóli, skóli hjá mér núna og ekkert annað gerist ...
vi snakkas
Hanna
27. febrúar 2008 klukkan 20:45
Hanna Magnúsdóttir Engin athugasemd
úff hvað maður er lélegur í þessum bloggmálum.....held það fari barað koma að því að maður hætti þessu
en annars er það að frétta að mín lét loksins verða af því að byrja í einhverri líkamsrækt.....nema svo gat ég ekki valið hvað mér líkaði best þannig að ég er semsagt að æfa bæði Taekwondo og Kali Sikaran......þetta eru bæði sjálfsvarnaríþróttir og þetta er alveg ótrúlega skemmtilegt ...en ég er soldið þreytt þar sem ég æfi tvo tíma á dag, 5 daga vikunnar....jepp....ég er rugluð en ég ætlað reynað halda út eins lengi og ég get :) ...en ég verð samt mun duglegri í skólanum fyrir vikið því ég hef ekki tíma til að fara til Vennesla á milli skóla og æfinga ...þannig að ég sest alltaf inná bókasafn og les í nokkra tíma áður en ég fer á æfingu svo er ein íslensk stelpa að æfa með mér Kali....föttuðum það reyndar ekki fyrr en eftir fyrstu æfinguna... þannig að við töluðum norsku saman alla æfinguna en núna höfum við skipt yfir í íslenskuna...svona að mestu leyti....en maður gleymir sér náttla af og til og talar bara norskuna því maður er svo mikið að nota hana.
í gær var ég og hópurinn minn með fyrirlestur í stærðfræðitímanum....það gekk bara nokkuð vel.....stærðfræði er nú ekki mitt sterkasta fag en ég vona nú að ég rúlli þessu upp.....svo er brjálað að gera í verkefnavinnu....ég á að gera 2 verkefni í uppeldisfræði sem ég þarf að skila fyrir næsta föstudag....reyndar er annað þeirra hópaverkefni þannig að þá deilist álagið örlítið......og svo á ég að skrifa 4-5 síðna verkefni í norsku.....og það á ég að skrifa á nýnorsku....sem er skelfilegasta tungumál sem ég veit um.....ég veit ekki hvort ég eigi að reynað tala við kennarann og fá að skrifa það bara á venjulegri norsku, því ég kann ekki nýnorsku....en þeir hafa nú ekki tekið tillit til þess að ég sé útlendingur áður þannig að ég á ekki von á að ég sleppi létt frá þessu
en svo er ég að farað flytja til Kristiansand....Jey!! ....það verður svaka ljúft því ég er alveg að klepra á Vennesla.....oh það verður svo fínt að komast í menninguna. ....Eli Christine vinkona mín er semsagt búin að kaupa sér íbúð og ég ætlað leigja herbergi hjá henni.....það verður eflaust mjög fínt....ég er alltaf heima hjá henni hvort eð er ...hún fær semsagt lyklana 1.febrúar og þá getur maður byrjað að flytja inn....ég er búin að segja upp leigunni á húsinu sem ég bý í núna þannig að við höfum einn mánuð til að pakka niður og koma okkur út. ...ég vona bara að ég geti fengið einhvern til að hjálpa mér að flytja....ég þekki reyndar bara einn sem á bíl hérna, þannig að ég þarf líklega að blikka hann Robert aðeins og sjá hvort hann geti ekki aðstoðað mig
en jæja ætli ég segi þetta ekki gott í bili....
sjáum til hvenær ég nenni að blogga næst...
hilsen
Hanna
26. janúar 2008 klukkan 21:42
Hanna Magnúsdóttir 1 athugasemd